01maí

Jæja, kominn tími á smá blogg...

Byrjum á því merkilegasta sem á lööööngu að vera komið inn...

AKUREYRARFERÐIN:
Já ég, Sæunn, Hulda og Arna Diljá skelltum okkur á Akureyri á söngvakeppnina...
13-15. apríl og var það alveg hreint mergjað.. ætla að koma með smá svona ferðasögu...
Föstudagurinn:
Pökkuðum í bílinn... náðum svo í Huldu og brunuðum af stað.. ég byrjaði að keyra...
og svo í borgarnesi skiptum við því ég var ekki talinn nógu góður driver.. þar sem ég klessti
næstum því á bíl, svo þegar ég kom að til að borga inní gönginn þá var ég allt of langt frá
og bíll alveg í rassgatinu á mér og ég þurfti að standa þarna eins og hálviti og borga.. setjast
aftur inní bíl og keyra af stað... neinei þá var égnæstum búnað keyra inní akranes á hringtorginu..
þið kanski skiljið afhverju stelpurnar ákvaðu að láta mig ekki keyra meira.. Sæunn tók við og keyrði
í Blönduós minnir mig... en þá tók Hulda við... við enduðum á Akureyri um hálf 12 .. og það eina sem
var eftir að redda var gisting fyrir mig og Huldu.. við bönkuðum uppá hjá systir ömmu.. henni Sídu og
auðvitað leyfði hún okkur að gista hjá sér.. þá var bara farið og skutla Sæunni og Örnu til Kristofs
 og við fórumm heim að taka okkur til og kíktum svo á djammið.. kíktum á Capone  og dönsuðum þar
eitthvað frameftir.. og svo bara farið heim að sofa..

Laugardagurinn:
Vöknuðum um hádegi og byrjuðum á að fara í Glerártorg að borða og svo aðeins að skoða þar... svo bara
rúntuðum við um Akureyrina.. náðum svo í miðana á söngvakeppnina og drifum okkur svo á skauta... já..
Það má alveg segja að það hafi verið ein skemmtilegasta skautaferð sem ég hef farið í.. en eftir hana
fóru ég og Hulda bara heim til Sídu og Arna og Sæunn bara heim til Kristofs.. og gerðum okkur til fyrir
"the big night" anyways... hittumst svo allar og fórum á Greifann.. fengum þar mjöög góðar pizzur og fórum
svo niðrá hótel til norðfirðinganna og spjölluðum eitthvað og svo bara uppí íþróttarhöll.. svo byrjaði
söngvakeppnin.. mjög góð að mínu mati verð ég nú bara að segja.. svolítið mikill hiti þarna inni en samt
mjög gaman.. síðan fórum við bara heim til Kristofs og skiptum um föt og löguðum okkur til... og drifum
okkur síðan á ball.. það var troðið fyrir utan og ég og Soffía tróðum okkur þarna í gegn eins og herforingjar
og tók það okkur aðeins 10 mín.. mestalagi... en þetta var klikkað ball ... og ógeðslega gaman bara.. ekkert
hægt að segja frá því.. hittum ekkert smá marga og bara takk allir fyrir ;) Þetta var ææææði... svo fórum við
bara á Capone og vorum þar til lokunar... þá drifum við okkur bara niðrí bæ þar sem allir voru... eyddum
dágóðum tíma þar og drifum okkur svo bara í háttinn...

Sunnudagurinn:
Vöknuðum um hádegi. pökkuðum borðuðum og keyrðum heim.. Hulda og Arna keyrðu allann tímann.. ég og sæunn ekki
alveg að nenna að keyra heim og svo var ég heldur ekkert alveg að meika það sem driver á föstudeginum;) en þetta
var mergjuð ferð.. takk æðislega fyrir stelpur mínar... vona að við gerum svona aftur ;)

~Gerðum svona ferðarinnar.. hér kemur það:

Ökumaður: Ég
Ökuníðingur: Arna
Fyrirsæta: Klárlega ég
Mynd:
.
Hözzler: Sæunn ,,Sessý"
Setning: ,,Ó shittí gat" Sessý
Orð: Druslugat - Sessý
Skautari: Hulda -ekki miklir skautahæfileikar hér á ferð
Driver: Arna - Fyrir að vera edrú alla helgina að keyra...
Bytta: Sessý Skúla
Símamella: Arna
Gulrót: Hulda
Dansari: Sæunn, Ég og Arna
Sætastar: Sæunn og Hulda
Krútt: Sæunn
Freðin: Erla - á dansgólfinu á Capone...
Glös: Partýglösin úr Tiger og glasið hennar Sæunnar
Þynnka: Sæunn
Bíll ferðarinnar: Orri
Nammi: Hockey Pulver

Frábær ferð í alla staði ;)



....en að allt öðru... jáhh ... daglega lífið...

Það sem er að frétta af mér er þetta helst:

~Ég klessti Orra og hann fór á verkstæði... nokkrum dögum seinna fékk ég símtal sem sagði að bíllinn væri bara
ónýtur... vondar fréttir þar á ferð þar sem Orri var sko sannalega bíll með sál ... en lifi minningin um Orra...

~Ég er byrjuð að vinna á 365, orðin aðalsímaröddin þar... haha segi svona...
~Búin að taka eina helgi á Hverfis.. það var ágætt...
~Er að leita að staðgengli fyrir Orra, gengur ekki vel þar sem það er settur hár standard...
~Flutningur er á næsta leiti..

og svo að lokum vil ég benda fólki á þennann stórgóða banner sem frændi minn Eiríkur gerðu

En endilega kommentið

Kossar og knús

ErlaBjé
01. maí 2007 klukkan 17:05
Erla Bjarný Jónsdóttir
4 athugasemdir

Leit

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Textareitur

23. Ágúst - Skólinn byrjar
24. Ágúst - Fć íbúđina
26. Ágúst - Hjálmar, Rćtur og Wilson Rocknes á Egs
2. Sept - Busaball ME

Könnun

Hvađ ertu gamall/gömul?