31ágúst
Það er aldeilis.. jáhh.. þetta blogg er heldur betur búið að fá smá athygli... en auðvitað er þetta bara mitt álit með fullri virðingu fyrir öllum öðrum;)
anyways það sem er að frétta...
- Ég er flutt að heiman .. og er þar af leiðandi ekki komin með netið..
- Ég stefni á heimsyfirráð miðað við hvað ég er að læra mikið atm...
- Busaballið á morgun.. er það málið eða ?;)
- Brynjar alltaf að læra fleiri og fleiri orð ;)
Ekki er það nú mikið fleira.. en var að finna myndir af frönskum dögum skelli þeim nú á netið við tækifæri... og kanski maður hafi myndavélina með annaðkvöld ;)
See you around..
komment :D
22ágúst
Sæl..
Ég var að keyra Brynjari á leikskólann í morgun að hlusta a Zúper og heyri bara eitthvað smá af þessum samræðum og það sem ég heyri er eitthvað svona "Já mér finnst þessi veiki bara ekkert ásættanleg og bara alveg eins hættulegt að reykja og þetta fólk deyr miklu fyrr og er ALDREI hamingjusamt fær allskonar sjúkdóma og lifir ekki góðu lífi" ég bara ókey hvað eru þau eiginlega að tala um .. þá sagði eitthver "afhverju ertu svona á móti hommum og lessum"
...ég missti næstum andlitið.. hann talar bara um fólk sem elskar ekki eins og hann vill eins og plágu.. ókey ég þekki nú eitthverja homma og eitthverjar lessur og veit ekki nema þetta sé mjög hamingjusamt fólk.... og þeir sem þekkja mig vita nú að mér finnst þetta fólk algerlega guðsgjöf... en svo hélt þessi maður áfram "já hommar og lessur blablabla eitthvað...kyníf er til að fjölga ekki njóta og eitthvað svona" bara já ókey, og vitnaði eitthvað rosalega í biblíuna og eitthvað..
..mér finnst þessi maður alveg ótrúlega óþroskaður og vitlaus að þurfa að skipta sér að því hvernig aðrir elska og hvað aðrir gera í rúminu.. ef þessi maður hefur ekkert betra að gera en að hugsa um það er eitthvað alvarlega mikið að..
..Hvaða svaka sjúkdómar eru þetta sem hommar og lessur fá sem valda þau að þau lifa styttra ?
..Og afhverju setur hann þá staðhæfingu að hommar og lessur séu alltaf óhamingjusöm?
..Og afhverju er hann að tala um þau eins og þau séu plágur?
..Og afhverju er hann að þessu ? Hann vill ekki að það sé bannað honum að elska þá sem hann elskar ..
Ég varð bara að koma þessu frá mér
EndilegaKvittið;)
ErlaBjéHommaOgLessuvinur;)
15ágúst
Jæja.. verslunarmannahelgin og allt það liðin.. frábær helgi .. fór á Pál Óskar á föst, Skímó á Lau og Sálina á Sun.. þetta voru mögnuð böll :D
en svo ákvað ég að drífa mig til Reykjavíkur og vil þakka Bigga, HULDU MEST, Yngva, Erp, Elí, Þóru, Jónasi, Garðari, Bödda, Ellen Systur, Erlu S, Hildi Árna
og öllum sem ég hitti bara:D ætlaði bara að láta vita að ég væri á lífi.. blogga um ferðina við tækifæri ;D
31júlí
Já .. þá er maður búinn í útilegunni.. sem var bara nokkuð góð get ég sagt ykkur...
Hér kemur hún...
Föstudagurinn:
Við lögðum af stað rétt yfir 5 og tókum bensín og svona.. þegar við vorum komin hjá Kirkjumel hringir Þóra og segir okkur að við eigum eftir að borga bensínið :D hehe.. Góður :p og þá fórum við í Krónuna á Reyðarfirði:) og svo bara á Fásk.. eftir smá snúninga... Svo tjölduðum við og grilluðum og svona... og drifum okkur síðan á varðeld og brekkusöng og ég veit ekki hvað.. algjör stemming.. svo bara vorum við þarna hjá Sumarlínu (bar) og löbbuðum svo í átt að hótel Bjargi .. en á leiðinni fundum við hundinn okkar Spotta .. og löbbuðum með hann .. eftir smá meira rötl pissuðum við Svana heima hjá Nonna Megas (svona hálfgerlega brutumst þar inn en samt ekki) allan þennann tíma sungum við hástöfum og höfðum voða gaman:D svo fórum við bara fyrir utan hótelið og bara já það var geðveikt gaman... svo á endanum skutlaði Atli Már okkur útá tjaldstæði.. og þangað kom fullt af fólki og in the end náði maður að sofna..
Laugardagurinn:
Ég vaknaði og hélt ég væri að deyja.. já... endanum hringdi ég í Gugga og fékk að koma og sofa þar aðeins.. Hún á sko allt það besta skilið fyrir það.. algjört yndi;) Svo bara vakti Kata mig og við fórum á kaffhús og eitthvað svona.. svo bara fórum við útá tjaldstæði og þá byrjaði sko okkar dagur.. (hjá mér, Erlu Rán og Bergrós) við ákváðum að keyra á Reyðarfjörð að leita að regnhlífum og fundum ekkert... á leiðinni heim lentum við í allsvakalegudæmi.. við vorum bara að keyra svona og 3 bílar að mæta okkur fremsti var húsbíll og hinir bara venjulegir fólksbílar.. svo allt í einu ákvað aftasti bílinn að taka framúr hinum og við þurftum að snarhemla og það var rigning svo við runnum útum allan veg og lentum næstum á húsbílnum og vorum næstum farnar útaf og bara rétt sluppum .. þetta var ÓGEÐ.. þarna hélt ég að ég myndi deyja.. svo komum við heim og fórum í sturtu og e-ð og ákváðum svo að fara og finna okkur mat.. fyrst lentum við í fólki frá Sólheimum sem vissi ekkert .. það afgreiddi okkur.. svo settumst við niður og það var svona skítugur diskur og e-ð og ég bað eitthverja konu að taka þetta fyrir mig þá sagði hún "ÉG TEK ÞETTA ÞEGAR MÉR SÝNIST" hehehe:p svo komu Erla Guðbjörg, Rúnar og Kristín og tóku svona stóla af öðru borði og pöntuðu sér svo mat..ókey.. það var ekkert mál... svo allt í einu kemur eitthver kall og rikkir í stólinn og segist ætla að sitja á honum því hann tilheyri öðru borði og eitthvað rugl.. :s og reif svo bara stólinn undan honum.. og við GRENJUÐUM úr hlátri.. svo fórum við bara útá tjaldstæði.. og þar var eitthvað partý og e-ð .. svo bara gafst ég upp og fór heim með Kristínu, Gísla og Erlu Rán..
Vil þakka öllum fyrir góða helgi
Kommentið ;)
Kveð að sinni
ErlaBjééé
28júlí
Jæja.. þá er ekkert að frétta og allt frekar eitthvað dapur.. ég er búnað vera í veikindafríi í vinnunni í 1 og hálfa viku og er að fá algjörlega nóg sko.. er semsagt með eitthvað ógeð í TÁNNI.. :s og má ekki vinna.. og allt það sem er búið að gerast spennandi á þessum tíma er:
- Ættarmótið var .. ofur gaman geðveikur hiti og allt æðislegt.. myndir á www.brynjar.barnaland.is.. passwordið er nafn Ömmu minnar í mömmuætt já eða bara nafnið á eldri dóttur Hrefnu systir mömmu.. og ef þið vitið hvorugt þá ekki hika við að spurja...:p
- Ég og Sæunn skutluðum Alex í flug á Egilsstaði.. voooða gaman :p
- Svo endalega gafst ég upp og dreif mig á Egilstaði og er búnað vera þar núna síðan á miðvikudaginn ...
Svo er það útilegan í dag.. held maður drífi sig sko :p frekar óplanað allt.. en ferðinni er heitið á Franska Daga á Fáskrúðsfirði og eld ég að maður gæti nú skemmt sér ágætlega þar:)
En ég læt ykkur vita hvernig útilegan var ef ég fer þangað... ;p
Untill then..
ErlaBjé

16júlí
Já ég er ekki að nenna að blogga einfaldlega vegna þess að ég er búnað hafa garg í eyrunum á mér í tæpa 9 tíma.. já það er rétt.. ég var að vinna á eistnaflugi.. ég meina svona í alvörunni.. þetta er garg sem ég gæti einfaldlega gert svo er líka svo ótrúlega fallegur texti í þessum lögum t.d. "þið munuð öll deyja" já eða "Ísland mun brenna" eða eitthvað álíka ... hvað ætliði að segja mér að sé áhugavert við þetta.. svo eru strákar/karlar með alls kyns vírdó klippingar og stíllin á skegginu er sko eitthvað til að tala um .. stelpurnar (get ekki sagt konurnar því þær vaxa flestar uppúr þessu) eru í hinum ýmsu dressum og ég get bara því miður sagt að ég hafi séð neitt töff af þessum 100 stelpum sem voru þarna.. þannig þessi tónlist og stílinn er bara ekki að meika neitt sens í mínum huga....
...en að ALLT öðru... eða svona næstum..
...ég ákvað í dag að fara á víxluna (Sundlaugin&Fótboltavöllurinn) og ég var ekki sest niður þegar það var hringt og beðið mig að koma í uppvask ég bara jájá ekkert mál og spretti niðrettir... neinei... þegar ég mæti er mér hent inná bar og ég kann EKKERT... og 40 manns að bíða eftir afgreiðslu.. ég mjakast áfram og á endanum er ég bara komin á ágætt skrið.. þegar ég er farin að kunna við mig.. þá er ég send í miðasöluna... GREIT... sem er það leiðinlegasta sem ég hef gert EVER...;)
...En það er svosem ekkert að frétta af mér.. nema ég er komin á bíl... ;) og er að vinna like a motherfucker... :S ekki gott sko:/ en annars er bara ekkert að frétta.. ;)
Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili
Kvittið í gestó ;o
Kveðja
ErlaBjéAntiMetalFan
07júlí
Jæja .. þá eru tónleikarnir búin ég komin í sumarfrí (mitt eina) og fæ bílinn í dag.... þetta er semsagt umræðuefnið í þessum pistli mínum;)
...Tónleikarnir:
Já.. mjööög góðir tónleikar sko... mjög fyndið fyrr um daginn sagði ég að ég þoldi ekki fólk sem er alltaf saman og gerir allt saman og e-ð þúst svona ástfangin.... og svo á leiðinni fórum við mamma að tala um þetta og ég bara fattaði hvað ég HATA svona fólk... og svo á tónleikunum segir Gummi "Ég þoli ekki svona yfirsig ástfangin fólk" ... þarna varð mér ljóst að ég er ekki ein um þetta;D og þegar heim var komið var rætt þetta svona smá ;) en já mjög góðir tónleikar...
...Sumarfríið:
Já ... ég er ekkert smá reið maður... ég er hérna búnað vinna í Egilsbúð í hálft ár.. s.s. búnað endast lengst í pizzasendingum og ég þarf að redda mér sjálf frí í vinnunni í einn dag svo ég geti skroppið og kíkt á familíuna... :/ Ósanngjarnt eða ? En í dag er ég semsagt að fara fljúgandi suður og keyri svo á Hellu;) Þarf að leggja af stað á miðvikudagsmorgun því ég byrja að vinna kl 18:00 hér í Nesk.. frábært eða ?;)
...Bíllinn:
Já á eftir er ég að fara suður eins og framkom áðan... og er að fara að ná í nýja bílinn;) Djööööööfull hlakka ég til.. þetta er kanski engin Impreza.. en hlakka til að þurfa ekki að labba í vinnuna eða fá mömmu bíl lánaðann:D Því ÉG ERLA BJARNÝ er að fara að fá bíl ;) En svo þið vitið er þetta bara gömul og sæt corolla sem eyðir engu ;) Hvað þarf maður meira ;)?
En jæja.. ég ætla að klára að pakka niður og skella mér svo í borg óttans ;)
Heyrumst :D
Kemur ferðasaga.. ;)
ErlaBjéééeé
05júlí
Jæja ég var víst búnað lofa eitthverjum færslu... ég reyni að hafa sem styðst á milli en eitthverneigin er það ekkert að ganga ... því þetta verður alltaf vika eða eitthvað... eeen ég er bara svo KLIKKAÐ busy að þið trúið því ekki :S
...en já ... ég er búin að auka vaktirnar í Egilsbúð sem þýðir fleiri dagar frá 8-11 :/ ótrúlegt hvað maður er peningagráðugur... en ég er á billjón pizzuvöktum og einni miðasöluvakt á Eistnaflugi... :)
...en talandi um vinnuna.. í gær var ég á vakt með Hákoni Gurra og vorum að ganga frá og Sæunn kom til okkar og ég var eitthvað að fara út með ruslið.. og var búnað taka 2 poka og átti eftir að taka síðasta.... neinei ... var að labba yfir ruslapokana og FLAUG á hausinn sentimeter frá því að fara ofan í ruslatunnuna og svo var stóll þarna og ég settist í hann og var að hlægja með lokuð augun og skallaði hrærivélina og við GREEEEENJUÐUM úr hlátri og fékk ég fullt að skemmtilegum viðurnefnum og fleira.. t.d. ruslana og sorpa litla svo fóru þau að ákveða að krydda söguna eitthvað upp og svona.. þannig þetta er rétta sagan ef þau segja eitthvað annað;) hehe..:D
...svo er ég nú alltaf blómastelpa og er alltaf jafn gaman hjá okkur ;D styttist samt í að Salóme fari :/ Glataaaað.. :)
...eeeeenn í kvöld eru tónleikarnir með Gumma Jóns á Rfj og auðvitað fer ég :D
... ekki mikið meira að frétta af mér .. reyni nú að halda þessu eitthvað aðeins meira gangandi.. ENDILEGA skrifið í skoðanir;)
þeinkz alot;)
ErlaBjééé;)
btw... essir punktar í byrjuninni ekki töff?:D
24júní
*~Lucas Prada - Ma Ya Hi~*
ekkert eiginlega að frétta.. bara búin að vera að vinna og svona.. kemst lítið annað að.... eeeen það sem er svona helst í fréttum er að
- Eva er hætt í vinnunni
- Svana kemur hér með hvert gullkornið á fætur öðrum svo ég fer nú að setja inn..
- Brynjar líklegast að fara til ömmu sinnar í 2 vikur
- Ég á afmæli eftir 3 daga og kemst inn á öll 18 ára böll ;D
- Mamma og Eva eftir 2
- Styttist óðum í Helluferðina, Eistnaflug og Neistaflug.. hlakka voðalega mikið til...
- Ef Brynjar fer suður til ömmu sinnar ætla ég að auka aðeins við mig vinnu...
En það er nú ekki mikið meira...
Reyni nú að blogga sem fyrst aftur ;D
Kveðja
~ErlaBjé~







22júní
Jæja.. þetta 123.is er bara ekkert að meika það.. alltaf að koma eitthverjar villur og eitthvað og mér leyst bara svo ótrúlega vel á þetta að ég ákvað að hafa þetta;D
eeeennn... anyways..
ekki mikið að frétta búið að rigna núna síðustu tvo daga og þá einmitt hugsar maður afhverju maður fór að vinna hjá bænum... en þetta er vonandi að fara að hætta.. búin að vera að laga leiði og eitthvað .. ekki alveg drauma djobbið en ... maður lætur sig sko hafa það ;D hehe.. Salóme og Svana áttu sín tímabil og ætluðu að athuga hvort þær fyndu eitthvað... Vil bara segja ykkur stelpur að Ingólfur geðlæknir er akkurat í bænum núna ;) En þetta er voða fínt og skemmtilegur hópur líka;D
Var einmitt að setja inn gullkorn því það sem vellur ekki útúr okkur er alveg hreint ótrúlegt:D hehe.. bæti þar inn reglulega:D
En núna eru bara rúmar 2 vikur í sumarbústaðaferðina góðu suður á Hellu og hlakka ég ekkert smá til að hitta alla ættingjana:D Þetta verður ábyggilega klikkað gaman og held að Júlí stefni bara í góðann og skemmtilegann mánuð fyrir utan að Brynjar minn ætlar ábyggilega að kíkja aðeins suður á ömmu sína og verður þar í e-rn smá tíma útaf leikskólinn er lokaður og svona aðeins til að létta undir okkur hér;)
Held það sé ekki fleira að frétta héðan.. ætla að setja inn myndirnar sem voru á gömlu síðunni og svona við tækifæri... geri það bara leið og ég hef nægann tíma
en endilega kommentið.. annars nenni ég ekkert að blogga;)
Ávítasen;)
ErlaBjé:)