Þá er komið að því....
...mánaðarlegt blogg...Það helsta í fréttum hjá mér er ekki mikið...
...ég er komin með vinnu...
Ég er farin að vinna á einkareknum leikskóla uppí Breiðholti sem er líka svona yndilega gaman ... eða ég er búnað mæta 1 dag og finnst það alveg frábært enn sem komið er;) Þetta tók engann smá tíma að finna sér vinnu...
...makaskipti hafa orðið...
Já , ég er komin með nýjan kærasta fyrir þá sem ekki vissu... Árni Pálsson frá Egilsstöðum... voða lítið um hann að segja.. flestir sem lesa þetta blogg vita hver hann er...

...Orri Minn...
Orri minn er alltaf jafn glaður, fallegur og bara yyyyyndislegur... ekkert búið að klessa hann.... (7,9,13) og er hann búinn að fá þetta líka OOOFUR flotta merki í gluggann.... Þökk sé Huldu og Selmu...

...Ég er með sprungu í rófubeininu og meððví...
Jájá, ég tók mig til á einu djamminu niðrí bæ að fljúúúúga á hausinn og afraksturinn sprungið rófubein og er alveg að drepast í rófubeininu og rassinum.. þetta er aðeins farið að minnka en fyrstu dagana hélt ég að ég myndi bara ekki lifa þetta af.... ég hef semsagt lagt háhæluðu skónna á hilluna og tekið þá góðu ákvörðun að hlaupa ALDREI í hálku aftur....
...Búin að panta far austur...
Já, ég er LOKSINS búin að panta flugfarið austur... Ég er ábyggilega síðasti austfirðingur í það.. en ég gerði það bara rétt áðan... og fer heim á skírdag útaf það var allt svo dýrt á miðvikudeginum... og fæ þá loksins að sjá Brynjar Óla minn:*
...Bannerinn...
Eiríkur hafdal á heiðurinn af þessum líka flotta banner.. hinn var orðinn frekar þreyttur... en hann tók sig til og myndaði mig og Sæunni alveg í bak og fyrir ....

...Broadway...
Ákvað að taka að mér að vinna á broadway á árshátíð... jájá.. smá stressuð aldrei gert svona áður og næstum því hætt við að mæta... en ég mætti og þegar gestirnir fóru að koma inn varð maður nú stressaður.... það eru 900 hundruð manns á árshátíð.. og ég gæti alveg lent með eitthverjum þvílíkum á borði... neinei.. ég hleyp niður að ná í eitthvað.. kem aftur upp.. þá er Eiríkur frændi og Eva kærastan hans sest á mitt borð og á hinu borðinu sat Gummi.. sem eg þekki svona semi.. samt ekki neitt... en þvílíka tilviljunin.. og þetta stressaði mann nú aðeins meira... en gekk allt saman mjööög vel;)

...Spánarferðin...
Ég er hætt við að fara í þá ferð.. er nottla allt of töff fyrir spánverja ;) en neinei.. ákvað að sleppa því bara að fara.. betra fyrir mig og Valþór...:)
En held þetta sé komið í bili...
~ErlaBjé~
25. mars 2007 klukkan 21:18
Erla Bjarný Jónsdóttir
Erla Bjarný Jónsdóttir
Love Yahh ;*
Kveðja Sætasta, flottasta & lang besta systir þín ( Steina)