Blogg...
Jæja, nú er sko nóg að segja frá...
Byrja kanski bara á því að deila því með ykkur að ég er ekki ennþá búin í prófum og tek þau ekki fyrr en í JANÚAR útaf auðvitað þurfti ég að lenda á spítala... þetta er að verða bara hluti af jólunum hjá manni... kíkja aðeins inná spítala fyrir jól... muna flestir eftir jólunum 2004 þegar ég fékk nú ekki einu sinni að eyða jólunum heima hjá mér... en núna er vandamálið ekkert blóðtappi eða eitthvað.. gat auðvitað ekki verið það sama.. núna var ég komin með sýkingu í nýrun og blóðið og héldu þeir jafnvel að ég væri með steina eða blöðrur í nýrunum og lá ég inni á spítala í 5 daga með næringu og sýklalyf í æð... núna er ég bara á sýklalyfjum og búnað vera í eitthverjum rannsóknum til að skoða þetta eitthvað nánar... Það sem ég best veit halda þessar rannsóknir áfram eftir áramót en þá í Reykjavík....
Alltaf dafnar barnið jafn vel og er farin að tala alveg ótrúlega mikið, ef maður spyr hann .. hvað segir jólasveininn þá svarar hann til baka “hohó” hehe.. og kann að svara hvað kisan og hundurinn segja og allskonar meira :D algjört dúllubarn

Síðan eru það jólin.. ójáójáójá... Bara nokkrir dagar í þau... ég get varla beðið sko.. búin að kaupa flestar jólagjafir.. og allt að smella, fyrir utan að það vantar Brynju og fjölskyldu hingað, vona að þau fari nú að koma heim, sakna þeirra voðalega mikið.. en þetta er allt að koma vona ég.. annars hitti ég þau nú milli jóla og nýárs..

Svo eru nottla allir að koma austur:p Bergrós, Inga Þórey, Hanna Bára, Ellen, Sæunn og allir bara að koma austur ;) Svo á þorláksmessu er nú planið að vinna og kíkja með Bergrósu niðrí bæ um kvöldið ... kaupa síðustu jólagjöfina og fá alvöru jólafíling;)
Eins og flestir vita verð ég í rvk á áramótunum og er planið að kíkja á pravda... áramótapartý... er það málið eða er eitthvað annað miiiklu skemmtilegra sem er alveg að fara framhjá mér... endilega látið mig vita.. allavegana verður djammað “feitt”
En núna er komið svona það sem er aðallega að frétta hjá mér og ég bara VERÐ að nýta tímann og kvarta aðeins.. ég er svvoooo bitur útaf þessu þrennu að það nær engri átt...
Glitnisdagatalið:
Þetta fannst mér sko geðveikt spennandi.. þetta er semsagt dagatal á netinu sem þú opnar á hverjum degi og fullt af voða flottum vinningum í boði... ÉG ER BÚNAÐ ÝTA Á HVERJUM DEGI Í TUTTUGU DAGA OG HEF ENNÞÁ EKKI UNNIÐ NEITT... GLÆSILEGT DAGATAL!!!!! Þess má samt geta að ég vann 3 svar í fyrra ;)
Skórnir frægu:
Já, ég fór á Egs á sunnudaginn með Þóru, Kötu, Brynjari og Ara Esk/mó.. allavegana við fórum í Sentrum og keyptum við okkur nú allar eitthvað, meðal annars ég stígvél.. hlakkaði mjööög til að fara í þeim í vinnuna daginn eftir... opnaði skókassann um morguninn... NEEEEII auðvitað... sitthvor skórinn.. ég semsagt fékk ekki sömu skótegund arg ég var bitur allann mánudaginn.. en Dagga sem ég vinn með var nú að fara á Egs og ákvað að taka skóinn með sér og skipta.. þannig ég hringdi uppeftir og sagði þeim að hún myndi koma og ég myndi vilja fá réttann skó í 37 .. þær bara jájá ekkert mál.. fæ skóinn í gær.. neinei réttur skór... EN VITLAUST NÚMER.. arg.. ég hélt ég yrði ekki eldri, þannig ég ætla að fara í dag/morgun/föstudaginn og skila þessum blessuðu skóm og fá endurgreitt...
Mikilvægasta í samfélaginu í dag:
Ókey, það vita allir að þessi Guðmundur í Byrginu á að hafa eytt peningunum vitlaust og eitthvað en þetta byrjaði á því að hann á að hafa verið að tæla stelpur og eitthvað og vil ég persónulega spurja .. afhverju skiptir það svona litlu máli við hliðina á þessum peningum.. ég meina hann er búinn að eyða þeim... oooog svona á nottla alls ekki að líða á svona stofnun... Ég fæ alveg grænar bólur þegar ég sé þetta í sjónvarpinu og það er bara talað um fjármálin en ekkert um greyið stelpurnar.... alveg þaf nú að laga þetta samfélag...
En ég held ég hafi þetta ekki mikið lengra að sinni ;)
Commentið:*
~ErlaBjé~
Erla Bjarný Jónsdóttir
hehe,,
En áhugavert blogg, reyndar sammála um fíflið í byrginu, meiri hálvitinn.
En flott blogg ást ;*
Bið að heilsa Brynjari sem rústaði símanum mínum í gær ;* HAHA