Byrjum á því merkilegasta sem á lööööngu að vera komið inn...
AKUREYRARFERÐIN: Já ég, Sæunn, Hulda og Arna Diljá skelltum okkur á Akureyri á söngvakeppnina... 13-15. apríl og var það alveg hreint mergjað.. ætla að koma með smá svona ferðasögu... Föstudagurinn: Pökkuðum í bílinn... náðum svo í Huldu og brunuðum af stað.. ég byrjaði að keyra... og svo í borgarnesi skiptum við því ég var ekki talinn nógu góður driver.. þar sem ég klessti næstum því á bíl, svo þegar ég kom að til að borga inní gönginn þá var ég allt of langt frá og bíll alveg í rassgatinu á mér og ég þurfti að standa þarna eins og hálviti og borga.. setjast aftur inní bíl og keyra af stað... neinei þá var égnæstum búnað keyra inní akranes á hringtorginu.. þið kanski skiljið afhverju stelpurnar ákvaðu að láta mig ekki keyra meira.. Sæunn tók við og keyrði í Blönduós minnir mig... en þá tók Hulda við... við enduðum á Akureyri um hálf 12 .. og það eina sem var eftir að redda var gisting fyrir mig og Huldu.. við bönkuðum uppá hjá systir ömmu.. henni Sídu og auðvitað leyfði hún okkur að gista hjá sér.. þá var bara farið og skutla Sæunni og Örnu til Kristofs og við fórumm heim að taka okkur til og kíktum svo á djammið.. kíktum á Capone og dönsuðum þar eitthvað frameftir.. og svo bara farið heim að sofa..
Laugardagurinn: Vöknuðum um hádegi og byrjuðum á að fara í Glerártorg að borða og svo aðeins að skoða þar... svo bara rúntuðum við um Akureyrina.. náðum svo í miðana á söngvakeppnina og drifum okkur svo á skauta... já.. Það má alveg segja að það hafi verið ein skemmtilegasta skautaferð sem ég hef farið í.. en eftir hana fóru ég og Hulda bara heim til Sídu og Arna og Sæunn bara heim til Kristofs.. og gerðum okkur til fyrir "the big night" anyways... hittumst svo allar og fórum á Greifann.. fengum þar mjöög góðar pizzur og fórum svo niðrá hótel til norðfirðinganna og spjölluðum eitthvað og svo bara uppí íþróttarhöll.. svo byrjaði söngvakeppnin.. mjög góð að mínu mati verð ég nú bara að segja.. svolítið mikill hiti þarna inni en samt mjög gaman.. síðan fórum við bara heim til Kristofs og skiptum um föt og löguðum okkur til... og drifum okkur síðan á ball.. það var troðið fyrir utan og ég og Soffía tróðum okkur þarna í gegn eins og herforingjar og tók það okkur aðeins 10 mín.. mestalagi... en þetta var klikkað ball ... og ógeðslega gaman bara.. ekkert hægt að segja frá því.. hittum ekkert smá marga og bara takk allir fyrir ;) Þetta var ææææði... svo fórum við bara á Capone og vorum þar til lokunar... þá drifum við okkur bara niðrí bæ þar sem allir voru... eyddum dágóðum tíma þar og drifum okkur svo bara í háttinn...
Sunnudagurinn: Vöknuðum um hádegi. pökkuðum borðuðum og keyrðum heim.. Hulda og Arna keyrðu allann tímann.. ég og sæunn ekki alveg að nenna að keyra heim og svo var ég heldur ekkert alveg að meika það sem driver á föstudeginum;) en þetta var mergjuð ferð.. takk æðislega fyrir stelpur mínar... vona að við gerum svona aftur ;)
~Gerðum svona ferðarinnar.. hér kemur það:
Ökumaður: Ég Ökuníðingur: Arna Fyrirsæta: Klárlega ég Mynd: Hözzler: Sæunn ,,Sessý" Setning: ,,Ó shittí gat" Sessý Orð: Druslugat - Sessý Skautari: Hulda -ekki miklir skautahæfileikar hér á ferð Driver: Arna - Fyrir að vera edrú alla helgina að keyra... Bytta: Sessý Skúla Símamella: Arna Gulrót: Hulda Dansari: Sæunn, Ég og Arna Sætastar: Sæunn og Hulda Krútt: Sæunn Freðin: Erla - á dansgólfinu á Capone... Glös: Partýglösin úr Tiger og glasið hennar Sæunnar Þynnka: Sæunn Bíll ferðarinnar: Orri Nammi: Hockey Pulver
Frábær ferð í alla staði ;)
....en að allt öðru... jáhh ... daglega lífið...
Það sem er að frétta af mér er þetta helst:
~Ég klessti Orra og hann fór á verkstæði... nokkrum dögum seinna fékk ég símtal sem sagði að bíllinn væri bara ónýtur... vondar fréttir þar á ferð þar sem Orri var sko sannalega bíll með sál ... en lifi minningin um Orra...
~Ég er byrjuð að vinna á 365, orðin aðalsímaröddin þar... haha segi svona... ~Búin að taka eina helgi á Hverfis.. það var ágætt... ~Er að leita að staðgengli fyrir Orra, gengur ekki vel þar sem það er settur hár standard... ~Flutningur er á næsta leiti..
og svo að lokum vil ég benda fólki á þennann stórgóða banner sem frændi minn Eiríkur gerðu
En endilega kommentið
Kossar og knús
ErlaBjé
01. maí 2007 klukkan 17:05
Erla Bjarný Jónsdóttir 4 athugasemdir
...ég er komin með vinnu... Ég er farin að vinna á einkareknum leikskóla uppí Breiðholti sem er líka svona yndilega gaman ... eða ég er búnað mæta 1 dag og finnst það alveg frábært enn sem komið er;) Þetta tók engann smá tíma að finna sér vinnu...
...makaskipti hafa orðið... Já , ég er komin með nýjan kærasta fyrir þá sem ekki vissu... Árni Pálsson frá Egilsstöðum... voða lítið um hann að segja.. flestir sem lesa þetta blogg vita hver hann er...
...Orri Minn... Orri minn er alltaf jafn glaður, fallegur og bara yyyyyndislegur... ekkert búið að klessa hann.... (7,9,13) og er hann búinn að fá þetta líka OOOFUR flotta merki í gluggann.... Þökk sé Huldu og Selmu...
...Ég er með sprungu í rófubeininu og meððví... Jájá, ég tók mig til á einu djamminu niðrí bæ að fljúúúúga á hausinn og afraksturinn sprungið rófubein og er alveg að drepast í rófubeininu og rassinum.. þetta er aðeins farið að minnka en fyrstu dagana hélt ég að ég myndi bara ekki lifa þetta af.... ég hef semsagt lagt háhæluðu skónna á hilluna og tekið þá góðu ákvörðun að hlaupa ALDREI í hálku aftur....
...Búin að panta far austur... Já, ég er LOKSINS búin að panta flugfarið austur... Ég er ábyggilega síðasti austfirðingur í það.. en ég gerði það bara rétt áðan... og fer heim á skírdag útaf það var allt svo dýrt á miðvikudeginum... og fæ þá loksins að sjá Brynjar Óla minn:*
...Bannerinn... Eiríkur hafdal á heiðurinn af þessum líka flotta banner.. hinn var orðinn frekar þreyttur... en hann tók sig til og myndaði mig og Sæunni alveg í bak og fyrir ....
...Broadway... Ákvað að taka að mér að vinna á broadway á árshátíð... jájá.. smá stressuð aldrei gert svona áður og næstum því hætt við að mæta... en ég mætti og þegar gestirnir fóru að koma inn varð maður nú stressaður.... það eru 900 hundruð manns á árshátíð.. og ég gæti alveg lent með eitthverjum þvílíkum á borði... neinei.. ég hleyp niður að ná í eitthvað.. kem aftur upp.. þá er Eiríkur frændi og Eva kærastan hans sest á mitt borð og á hinu borðinu sat Gummi.. sem eg þekki svona semi.. samt ekki neitt... en þvílíka tilviljunin.. og þetta stressaði mann nú aðeins meira... en gekk allt saman mjööög vel;)
...Spánarferðin... Ég er hætt við að fara í þá ferð.. er nottla allt of töff fyrir spánverja ;) en neinei.. ákvað að sleppa því bara að fara.. betra fyrir mig og Valþór...:)
En held þetta sé komið í bili...
~ErlaBjé~
25. mars 2007 klukkan 21:18
Erla Bjarný Jónsdóttir 9 athugasemdir
Byrja kanski bara á því að deila því með ykkur að ég er ekki ennþá búin í prófum og tek þau ekki fyrr en í JANÚAR útaf auðvitað þurfti ég að lenda á spítala... þetta er að verða bara hluti af jólunum hjá manni... kíkja aðeins inná spítala fyrir jól... muna flestir eftir jólunum 2004 þegar ég fékk nú ekki einu sinni að eyða jólunum heima hjá mér... en núna er vandamálið ekkert blóðtappi eða eitthvað.. gat auðvitað ekki verið það sama.. núna var ég komin með sýkingu í nýrun og blóðið og héldu þeir jafnvel að ég væri með steina eða blöðrur í nýrunum og lá ég inni á spítala í 5 daga með næringu og sýklalyf í æð... núna er ég bara á sýklalyfjum og búnað vera í eitthverjum rannsóknum til að skoða þetta eitthvað nánar... Það sem ég best veit halda þessar rannsóknir áfram eftir áramót en þá í Reykjavík....
Alltaf dafnar barnið jafn vel og er farin að tala alveg ótrúlega mikið, ef maður spyr hann .. hvað segir jólasveininn þá svarar hann til baka “hohó” hehe.. og kann að svara hvað kisan og hundurinn segja og allskonar meira :D algjört dúllubarn
Síðan eru það jólin.. ójáójáójá... Bara nokkrir dagar í þau... ég get varla beðið sko.. búin að kaupa flestar jólagjafir.. og allt að smella, fyrir utan að það vantar Brynju og fjölskyldu hingað, vona að þau fari nú að koma heim, sakna þeirra voðalega mikið.. en þetta er allt að koma vona ég.. annars hitti ég þau nú milli jóla og nýárs..
Svo eru nottla allir að koma austur:p Bergrós, Inga Þórey, Hanna Bára, Ellen, Sæunn og allir bara að koma austur ;) Svo á þorláksmessu er nú planið að vinna og kíkja með Bergrósu niðrí bæ um kvöldið ... kaupa síðustu jólagjöfina og fá alvöru jólafíling;)
Eins og flestir vita verð ég í rvk á áramótunum og er planið að kíkja á pravda... áramótapartý... er það málið eða er eitthvað annað miiiklu skemmtilegra sem er alveg að fara framhjá mér... endilega látið mig vita.. allavegana verður djammað “feitt”
En núna er komið svona það sem er aðallega að frétta hjá mér og ég bara VERÐ að nýta tímann og kvarta aðeins.. ég er svvoooo bitur útaf þessu þrennu að það nær engri átt...
Glitnisdagatalið:
Þetta fannst mér sko geðveikt spennandi.. þetta er semsagt dagatal á netinu sem þú opnar á hverjum degi og fullt af voða flottum vinningum í boði... ÉG ER BÚNAÐ ÝTA Á HVERJUM DEGI Í TUTTUGU DAGA OG HEF ENNÞÁ EKKI UNNIÐ NEITT... GLÆSILEGT DAGATAL!!!!! Þess má samt geta að ég vann 3 svar í fyrra ;)
Skórnir frægu:
Já, ég fór á Egs á sunnudaginn með Þóru, Kötu, Brynjari og Ara Esk/mó.. allavegana við fórum í Sentrum og keyptum við okkur nú allar eitthvað, meðal annars ég stígvél.. hlakkaði mjööög til að fara í þeim í vinnuna daginn eftir... opnaði skókassann um morguninn... NEEEEII auðvitað... sitthvor skórinn.. ég semsagt fékk ekki sömu skótegund arg ég var bitur allann mánudaginn.. en Dagga sem ég vinn með var nú að fara á Egs og ákvað að taka skóinn með sér og skipta.. þannig ég hringdi uppeftir og sagði þeim að hún myndi koma og ég myndi vilja fá réttann skó í 37 .. þær bara jájá ekkert mál.. fæ skóinn í gær.. neinei réttur skór... EN VITLAUST NÚMER.. arg.. ég hélt ég yrði ekki eldri, þannig ég ætla að fara í dag/morgun/föstudaginn og skila þessum blessuðu skóm og fá endurgreitt...
Mikilvægasta í samfélaginu í dag:
Ókey, það vita allir að þessi Guðmundur í Byrginu á að hafa eytt peningunum vitlaust og eitthvað en þetta byrjaði á því að hann á að hafa verið að tæla stelpur og eitthvað og vil ég persónulega spurja .. afhverju skiptir það svona litlu máli við hliðina á þessum peningum.. ég meina hann er búinn að eyða þeim... oooog svona á nottla alls ekki að líða á svona stofnun... Ég fæ alveg grænar bólur þegar ég sé þetta í sjónvarpinu og það er bara talað um fjármálin en ekkert um greyið stelpurnar.... alveg þaf nú að laga þetta samfélag...
En ég held ég hafi þetta ekki mikið lengra að sinni ;)
Commentið:*
~ErlaBjé~
20. desember 2006 klukkan 17:41
Erla Bjarný Jónsdóttir 15 athugasemdir
Jæja prófin byrjuð.. þvílíkur hausverkur, hlakka til þegar þetta ógeðslega ógeð er búið.. en eg ákvað að skrifa bara smááá færslu og það til að óska honum Jóa í vogunum til hamingju með gullfallegu prinsessuna sem hann eignaðist á föstudaginn..!!!!;)
Þarna eru þau tvööö.. svaka sæt;)
05. desember 2006 klukkan 05:26
Erla Bjarný Jónsdóttir 2 athugasemdir
Jææææja, núna er heldur betur kominn tími til að rifja upp, held að það sé best gert með punktum...
Fluttum í nýja blokk...
Pétur flutti inn með okkur..
Fór til Rvk, hitti FULLT af fólki.. góð ferð og takk allir fyrir hana ;)
Alltaf bara að vinna í lyfju
og í skóla
og var að byrja að vinna í bíóinu svona með..
Brynjar Óli stækkar alltaf og stækkar og farin að segja FULLT af orðum
1 og hálfur mánuður í 2 ára afmæli hjá stráksa.. þetta er fljótt að líða fólk...
Fór á eitthver böll.. sem er nottla ekkert til að segja frá... hehe;)
...man ekkert fleira í bili
En það sem er á döfinni um helgina...
Föstudagurinn:
Vinna frá 11-18 í Lyfju
Vinna frá 19-00 í Fjarðabíó
Líklegast heim að sofa eftir erfiðann vinnudag...
Laugardagurinn
Fara með Brynjar Óla til Brynju og Óla, því það er piparkökudagur á leikskólanum sem ég kemst ekki á :/
Vinna frá 11-15
Clinique kynning í Lyfju, hlakka mjöööög til ;) Spennó spennó
Fyrirpartý hjá mér
Er málið að fara á Jólahlaðborðið eða ?
Sunnudagurinn:
Afmæli hjá Bjarka Fannari
... slaka á það sem eftir er dags
Jæja... ætli þetta sé ekki nóg í bili...
Ef þið kvittið ekki hætti ég að blogga:(
ErlaBjé
01. desember 2006 klukkan 06:38
Erla Bjarný Jónsdóttir 9 athugasemdir
16október
Shit , langt síðan ég bloggaði smá svona upprifjun....
Trúbadorhátíð: Gott kvöld.. eignaðist marga voðalega vinarlega vini... :p hehe.. takk fyrir gott kvöld allir :p ekkert hægt að segja meira um þetta, set inn myndir við tækifæri :D
Menningarferð VA:
Kom um hálf 10 á föstudeginum, valþór náði í mig ég fór heim til hans og skipti um föt og fórum uppí mosó og hittum Hinn. Keyrðum heim til Valþórs og sameinuðum í bíl kíktum svo bara niðrí bæ þar sem VAlþóri tókst að bakka á og næla sér í eina sekt sama dag og hann fékk prófið aftur :p sterkur leikur... hehe:D svo bara rúntuðum við eitthvað og fórum heim að sofa... á Laugardeginum var ég klárlega fallegasta manneskja dagsins.. :p þaggi hinn?:D svo bara fórum við í kringluna og borðuðum.. svo fór ég á footloose... gott leikrit.. en svo fórum við bara á rúntinn og niðrí bæ á cultura þar sem var voðalega gaman ;) svo fórum við heim að sofa vöknuðum um hádegi og keyrðum bara heim... voðalega næs:p stoppuðum á blönduós hjá Hrefnu og co og var það voða gott:p hitti svo ingu þórey á ak og brunuðum við svo á Neskið :p
Á móti sól ball á fásk: Ágætt ball, ekki eins troðið og maður bjóst við og frekar mikið rugl.. ;)
Þetta erþ að sem er aðalega að frétta héðan:p
Bið að heilsa í bili ;) ErlaBjé;)
16. október 2006 klukkan 01:55
Erla Bjarný Jónsdóttir 4 athugasemdir
Jæja.. ætli ég verði ekki að blogga eitthvað smá hérna... en leið og ég fór að tala um að blogga hérna áðan vildi Alex endilega að ég myndi tala um hann í blogginu og ákvað að setja inn nokkrar vel valdar myndir af alex..
Alex á góðum degi ;) Alex fyrir nokkrum árum;)
..Svo fór ég að segja Kötu Esk að ég ætlaði nú að fara að blogga og sagði við hana að Alex vildi vera í blogginu mínu.. þá vildi hún vera líka.. og fær hér mynd af sér... Þarna er Kata á sínu blómaskeiði ;)
... en þá vildi Jóhann dagur líka fá mynd af sér og hér kemur hún..
Klárlega Batselor austurlands;)
Allavegana.. þá er ekki mikið að frétta.. eða eiginlega bara ekki neitt, mjög svo róleg helgi..
Rúntað á föstudaginn með Óttari og rúntað á laugardaginn með Óttari og Kolbrúnu.. anyways..
Bara láta vita að ég sé á lífi
Ávítasehen:p ErlaBjé ;)
26. september 2006 klukkan 15:28
Erla Bjarný Jónsdóttir 5 athugasemdir
Smá uppdeit... Ekkert spes búið að gerast ... brjálað að gera í skólanum og svona.. en svona það sem er búið að gerast síðan 31. ágúst Busaball ME: Klárlega mjög leiðinlegt ball... Byrjaði á að þurfa að pissa ALLA leiðina og hélt ég myndi deyja.. kom þarna inn og ég þekki voða fáa... :s ótrúlegt en satt.. svo var hann Ragnar vinur minn svo góður að keyra mér bara heim.. takk fyrir það ;) Wilson Rocknes ball á Esk: Ég; Inga Þórey, Þóra og Lovísa ákváðum að skella okkur á ball.. alveg hreint mergjað ball og skemmti ég mér geeeeðveikt vel :D hehe..svo eftir ballið fórum við 7 heim í bílnum... s.s. ég, Þóra, Lovísa, Inga Þórey, Hjalti Þórs, Andri Hjörvar og Jói frá Rfj eftir mikið vesen .. hehe.. förum ekkert nánar útí það .. ég kanski tafði þessa brottför aðeins .. en þetta var bara til að krydda aðeins uppí þessu ;) Lögðum af stað loksins og stoppuðum á skarðinu svo að ég og Lovísa gætum skipt um sæti.. ég var að deyja.. svo skutluðum við Andra uppá hótel og Lovísu heim og fórum svo heim til mín að borða vínber ... auk þess sem Jói tók til.. miklar þakkir þar ... svo bara fór ég heim til mömmu að sofa ...:) Hlynur Ben á barnum: Jáhh ég og Kolbrún ákváðum að fara á barinn, var alveg eitthvað fólk sko ... en ég var ekki alveg að nenna að vera þarna .. vorum til svona 2 eða eitthvað og fórum svo bara á rúntinn með Helgu Björg, Benna og Eíríki til svona hálf 4 fór þá heim bara.. Laugardagurinn (Daginn eftir): Fór á víxluna hjá íþróttahöllinni á Reyðarfirði .. mjög fínt sko og góður grillmatur og læti.. síðan um kvöldið.. tókum við Kolbrún bara smá rúnt og horfðum svo á Prime... ég hreinlega grenjaði úr biturleika hún endaði ekkert.. ÖMURLEGT.. hélt sko að þetta væri geðveikt góð mynd eitthvað svona ekta til að sitja heima og horfa á en neinei, ég hló alveg og svona... en endirinn algjörlega ömurlegur .. takk fyrir pent.. þetta endaði kl 4 og fór ég þá heim til mömmu og svaf þar;) Þetta er semsagt það sem ég hef verið að bralla (eða það sem er virðingarvert að segja frá) Endilega skrifið skoðanir ErlaBjé is out ;)
18. september 2006 klukkan 03:28
Erla Bjarný Jónsdóttir 7 athugasemdir